• 00:01:08Sjúkrahús sprengt á Gaza
  • 00:07:59Framtíð laxeldis
  • 00:20:19Sjónvarpssería Anítu Briem

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Læknishjálp á átakasvæðum, framtíð laxeldis, Svo lengi sem við lifum

Hátt í 500 manns létust og um 340 særðust þegar sprengjuárás var gerð á sjúkrahús á Gaza-svæðinu. Samkvæmt alþjóðalögum er bannað að nota spítala og sjúkraflutninga í hernaðartilgangi eða sem skotmörk, en þau lög eru alltof oft brotin. Kastljós ræddi við Láru Jónasdóttur, stjórnarmann Íslandsdeildar Lækna án landamæra um mannúðaraðstoð á átakasvæðum.

Áhrif slysasleppinga úr eldiskví í Patreksfirði voru umfangsmeiri og verri en fiskifræðingar gerðu ráð fyrir, eins og fram kom í Kveik í gær. Áhættumat gerði hreinlega ekki ráð fyrir að strokulax gæti verið orðinn kynþroska og dreift sér jafn víða og hratt og raunin varð. Á laxeldi í opnum sjókvíum framtíð fyrir sér í ljósi þessara atburða? Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var gestur Kastljóss, en hún kynnti á dögunum fiskeldisstefnu til ársins 2022.

Það tók Anitu Briem sjö ár að skrifa handrit þáttaraðarinnar Svo lengi sem við lifum, sem byggir að miklu leyti á hennar eigin reynslu. Nú eru þættirnir komnir í sýningar á Stöð 2. Við kynntum okkur þættina.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,