15:35
Silfrið
Bylmingshögg á atvinnulífið og lánamarkaður í klemmu
Silfrið

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.

Bilun í verksmiðju Norðuráls kemur líklega til með að valda búsifjum. Óvíst er hversu mikil áhrifin verða fyrir þjóðarbúið, sem hefur þegar sýnt merki þess að vera farið að kólna. Þá eru húsnæðislánamarkaður í uppnámi: í kjölfar dóms Hæstaréttar um ólöglega skilmála á óverðtryggðum lánum hafa bankarnir þrengt lánakjör sín og Landsbankinn ætlar að hætta að veita verðtryggð lán nema fyrir fyrstu kaupendur. Við förum yfir stöðuna með Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, Ragnari Þór Ingólfssyni, þingmanni Flokki fólksins, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, varaformanni Framsóknarflokksins, og Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, þingmanni Samfylkingarinnar.

Í seinni hluta þáttar ræðum við við Carstein Staur, formann Þróunarsamvinnunefndar OECD, um breytt landslag í þróunarsamvinnu eftir stórfelldan niðurskurð stórra framlagsríkja til opinberrar þróunaraðastoðar það sem af er ári.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 45 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt.
,