14:00
Veiðikofinn
Sjóbleikja
Veiðikofinn

Veiðiþættir í umsjá bræðranna Gunnars og Ásmundar Helgasona. Í þáttunum fara þeir á ýmsa veiðistaði, fá aðstoð sérfræðinga og heimafólks og veiða meðal annars ísaldarrurriða á flugu, þorsk af kajak, lax á Vesturlandi, silung á fjöllum og hákarl úr fjöru. Þeir elda allt sem þeir veiða, þó við misjafnar aðstæður og með misjöfnum árangri. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.

Sjóbleikjan þykir einn allra besti matfiskur sem kostur er á og bræðurnir freista þess að fanga þennan ljúffenga fisk. Áfangastaðurinn er Önundarfjörður, þar sem áin er tær, veðrið gott og ströndin hvít. Aflinn er síðan eldaður á býsna nýstárlegan hátt.

Er aðgengilegt til 17. október 2025.
Lengd: 20 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,