Tíðindaleysi á þingi
Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, um áhrif þess að takmarka lengri verðtryggð lán og setja skilyrði um lágmarks eignamyndun.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.