Tíðindaleysi á þingi
Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.
Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar segir Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti frá henni. Starfsfólk í þjónustukjarnanum sem hann býr í vísí í reglur sem kveði á um sjálfsákvörðunarrétt hans og því myndi það teljast nauðung að banna honum að borða meiri mat.
Þetta er fyrri þáttur af tveimur en í næsta þætti er rætt við prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og formann Þroskahjálpar.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.