Nýtt vígbúnaðarkapphlaup þegar afvopnunar er minnst
Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og hernaðarmála…
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í síðustu viku umsókn Surtseyjarfélagsins um að stækka þyrlupallinn í Surtsey úr 36 fermetrum í um 100. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi - en hvers vegna að stækka pallinn og hvernig myndu slíkar framkvæmdir vera skipulagðar með tilliti til náttúruverndar?
Rætt er við Magnús Tuma Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, Sigurð Wiium, yfirflugstjóra hjá Landhelgisgæslunni, og Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, formann umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.