Tíðindaleysi á þingi
Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.
Morgunblaðið greindi frá því í upphafi viku að Hvalur hf. ætlaði að hætta að selja Japönum hvalkjöt í bili en nýta kjöt af langreyðum þess í stað til framleiðslu á járnbætiefni. Í þætti dagsins beinum við sjónum að járnskorti og þeirri hugmynd að framleiða járnbætiefni úr hvalkjöti.
Viðmælendur:
Jóhanna Eyrún Torfadóttir, dósent í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu
Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalasérfræðingur og lektor í líffræði
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.