Tíðindaleysi á þingi
Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.
Þorrablót Flateyringa komst í fréttir síðasta vetur. Vikuna eftir það fluttu fjölmiðlar fréttir af því að kvartað hefði verið undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, á þorrablótinu til Nefndar um eftirlit með lögreglu
Fjallað er um mál Helga í þætti dagsins og rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur varahéraðssaksóknar um nefndina sem hefur eftirlit með störfum lögreglu.
Umsjón: Gréta Sigríður Einarsdóttir

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.