Nýtt vígbúnaðarkapphlaup þegar afvopnunar er minnst
Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem skref voru stigin í átt að afvopnun. Þessara tímamóta er nú víða minnst – á sama tíma og útgjöld til varnar- og hernaðarmála…
Við förum til Brasilíu í þætti dagsins þar sem forsetakosningar fóru fram í gær. Hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, fékk flest atkvæði, rúm 47 prósent gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorugur fékk hreinan meirihluta og þess vegna verður kosið aftur eftir tæpar þrjár vikur.
Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor og sérfræðing í málefnum Rómönsku-Ameríku.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.