Tíðindaleysi á þingi
Óvenju lítið hefur verið að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Rætt er við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um stöðu mála.
Einstaka lífeyrissjóðir eru eigendur í fyrirtækjum sem á sama tíma eiga að vera keppinautar á markaði. Undir er matvara, bensín, bankastarfsemi og fjarskiptaþjónusta, svo fátt eitt sé nefnt. Prófessor segir þetta áhyggjuefni en framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs segir það fela í sér kosti. Lífeyrissjóðir eftirláta öðrum stjórn skráðra fyrirtækja sem þeir eiga stóra hluti í. Óháðar nefndir sjái um að gæta þess að óháðir stjórnarmenn gæti hagsmuna þeirra. En hver skipar óháðu nefndirnar?

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.