• 00:07:34Fugl dagsins
  • 00:18:55Jódís Skúlad. - Regnbogahátíð á Austurlandi
  • 00:35:58Helga Vollertsen - Þjóðminjasafnið safn vikunnar

Sumarmál

Regnbogahátíð á Austurlandi, Þjóðminjasafnið og fugl dagsins

Það er Regnbogahátíð á Austurlandi þessa vikuna. Það verða ýmsir viðburðir víða um Austurland, þau hófu leikinn á Bræðslunni í Borgarfirði en verða svo víða, götur verða málaðar, það verður lifandi tónlist og hinsegin listasmiðjur. Jódís Skúladóttir var á línunni austan og sagði okkur frekar frá hátíðinni og Hinsegin Austurlandi sem einmitt stendur fyrir hátíðinni.

Safn vikunnar í þetta sinn var Þjóðminjasafn Íslands. Helga Vollertsen er sérfræðingur viðburða og fræðslu þar á og hún var hjá okkur í dag og sagði okkur frá því sem er á döfinni í Þjóðminjasafninu þessa dagana og á næstunni. Þar er til dæmis verið sýna brúðarbúning frá 18.öld sem fannst á sjöunda áratugnum í London. Eins eru verk Sólons Íslandus, eða Sölva Helgasonar, og fleira sem Helga sagði okkur frá.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Það er svo skrýtið / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)

Í sól og sumaryl / Stebbi og Eyfi (Gylfi Ægisson)

Við komum heim / Hinsegin Austurland, söngvarar m.a. Páll Óskar og Svavar Pétur Eysteinsson (Alexander Bard, Tim Norel og Jean-Pierre Barda, texti Jódís Skúladóttir, Stefán Bogi Sveinsson og Ingunn Bylgja Einarsdóttir)

Sunshine Reggae / Laid Back (Tim Stahl & John Guldberg)

Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir

Birt

27. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,