Það er Regnbogahátíð á Austurlandi þessa vikuna. Það verða ýmsir viðburðir víða um Austurland, þau hófu leikinn á Bræðslunni í Borgarfirði en verða svo víða, götur verða málaðar, það verður lifandi tónlist og hinsegin listasmiðjur. Jódís Skúladóttir var á línunni að austan og sagði okkur frekar frá hátíðinni og Hinsegin Austurlandi sem einmitt stendur fyrir hátíðinni.
Safn vikunnar í þetta sinn var Þjóðminjasafn Íslands. Helga Vollertsen er sérfræðingur viðburða og fræðslu þar á bæ og hún var hjá okkur í dag og sagði okkur frá því sem er á döfinni í Þjóðminjasafninu þessa dagana og á næstunni. Þar er til dæmis verið að sýna brúðarbúning frá 18.öld sem fannst á sjöunda áratugnum í London. Eins eru verk Sólons Íslandus, eða Sölva Helgasonar, og fleira sem Helga sagði okkur frá.
Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Það er svo skrýtið / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Í sól og sumaryl / Stebbi og Eyfi (Gylfi Ægisson)
Við komum heim / Hinsegin Austurland, söngvarar m.a. Páll Óskar og Svavar Pétur Eysteinsson (Alexander Bard, Tim Norel og Jean-Pierre Barda, texti Jódís Skúladóttir, Stefán Bogi Sveinsson og Ingunn Bylgja Einarsdóttir)
Sunshine Reggae / Laid Back (Tim Stahl & John Guldberg)
Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir