• 00:07:33Fugl dagsins
  • 00:21:23Guðríður Gyða - Svepparíkið
  • 00:39:05Ingibjörg Daníelsd. - ljóð Guðmundar Böðvarssonar

Sumarmál

Guðríður Gyða og Svepparíkið, Ingibjörg um Guðmund Böðvarsson og fuglinn

Við kynntum okkur sveppi í þættinum í dag, en Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, doktor í sveppafræðum, sem hefur verið í Svepparíkinu, áhugaverðum sjónvarpsþáttum sem sýndir eru á RÚV á sunnudagskvöldum, var með okkur í dag. Hún er óþreytandi fræða fólk um sveppi, fjölbreytileika þeirra, hverjir þeirra eru hættulegir, hverjir eru góðir í matargerð, hverjir hafa jafnvel lækningarmátt, hverjir innihalda hugbreytandi efni og svo er það blessaður myglusveppurinn, sem hefur auðvitað verið mikið í fréttum undanfarin ár, þegar hann finnst í byggingum með tilheyrandi raski og tilkostnaði. Guðríður Gyða fræddi okkur um svepparíkið í þættinum.

Um helgina sáum við í fréttum RUV þegar veitt var úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda á Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurðardóttur konu hans. Tilgangur sjóðsins er í raun tvíþættur, annars vegar vekja athygli á og styðja við það sem vel er gert hvað varðar borgfirska menningu. Hins vegar er tilgangurinn efla ljóðagerð ásamt því vekja athygli á ljóðum Guðmundar Böðvarssonar, sem enn eiga fullt erindi til okkar, því hann fjallar oft um grundvallaratriði sem varða líf okkar hér á jörðinni. Við töluðum við Ingibjörgu Daníelsdóttur formann minningarsjóðsins í dag.

Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Lög í þættinum

Capriljóð / Álftagerðisbræður(erlent lag, texti Friðjón Þórðarson)

Í grænum / Elly Vilhjálms (Sigfús Halldórsson, texti Gestur Guðfinnsson)

Veðurglöggur / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)

Fylgd / Pálmi Gunnarsson og hljómsveitin Kjarabót (Sigurður Rúnar Jónsson, texti Guðmundur Böðvarsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR+

Frumflutt

26. ágúst 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Sumarmál

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,