Meining
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Ráfað er á milli þess gamla og nýja með hjálp gamalla hljóðbrota úr safnkistu Ríkisútvarpsins. Rætt er við samtímafólk þegar hægt er eða einhvern sem tengist upptökunum með einum eða öðrum hætti.
Í þættinum er hlýtt á reynslusögu Bjarna Viborg Guðmundssonar, sem fluttist ungur til Kanada og var þaðan sendur til að berjast með skoskum og írskum herdeildum í fyrri heimsstyrjöldinni. Útvarpið ræddi við hann á efri árum árið 1958, við hlýðum á það og heyrum í dóttur hans, Ingibjörgu Bjarnadóttur.
„Ég hef ekki ímyndunarafl til að ímynda mér svona hrylling,“ segir Ingibjörg um reynslu föður síns úr skotgröfunum þegar hún rifjar upp minningar í þætti dagsins. Samtalið fer um víðan völl, við sögu kemur huldufólk, baunasúpa, aldagömul ferðabæn, skotsár og stríðsmeiðsl, frumbyggjar í Kanada, peningar, vangaveltur um eðli mannsins og ýmislegt fleira.