Meining
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Í þættinum heyrum við í ungu fólki og menntakerfinu og skoðum hugmyndir úr nýjustu bók Judith Butler, Who’s Afraid of Gender? Í bókinni rýnir hán í kyn og kynvitund frá líffræðilegu og félagslegu sjónarmiði og skoðar þann samfélagslega ótta sem hefur orðið til í tengslum við kynjahugmyndafræði eða „gender ideology“.
Esjar Smári Blær Gunnarsson menntaskólanemi segir frá reynslu sinni af því að koma út sem trans á unglingsárum. Við heyrum líka raddir ungs fólks úr hinsegin félagsmiðstöðinni. Íris Ellenberger, prófessor við deild faggreinakennslu í samfélagsgreinum, og Auður Magndís Auðardóttir, dósent í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, segja frá rannsókn sem unnin var í fyrra þar sem skoðuð voru áhrif bakslagsins á grunn- og framhaldsskólakennara.
Þetta er fyrri þáttur af tveimur.