
Meining
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
„Hann lét mig alveg vita af því að hann hefði komið í þessa ferð til að komast upp í Arnarhreiðrið,“ segir Hólmfríður Bjarnadóttir, leiðsögukona hjá Bændaferðum, um íslenskan ferðamann sem deildi því með henni að hann aðhylltist nasisma og sóttist eftir ferð upp í Arnarhreiðrið á tíunda áratugnum í eins konar pílagrímstilgangi. Hún segir sömuleiðis frá ferðamönnum sem vildu ekki heimsækja svæðið.
Í þættinum er fjallað um Khelsteinhaus, eða Arnarhreiðrið, með hliðsjón af nýafstöðnum eldsvoða. Illugi Jökulsson segir sögu þess, frá kostnaðarsömum og flóknum framkvæmdum og algengum misskilningi í tengslum við Arnarhreiðrið og Berghof, persónulegt sumarhús Hitlers. Hólmfríður Bjarnadóttir, leiðsögukona hjá Bændaferðum, rifjar upp eftirminnilegar ferðir í Arnarhreiðrið og segir frá stöðu mála eftir eldsvoðann.
Árið 1946 fékk hópur íslenskra blaðamanna leyfi hernámsyfirvalda bandamanna til að vera viðstaddur réttarhöldin í Nurnberg og ferðast um stríðshrjáð svæði Þýskalands. Hlýtt er á hljóðbrot úr heimsókn þeirra í Berchtesgaden, suðurhöfuðstöðvum nasistaflokksins.
Rústir Berghofs, sem og annarra bygginga nasistaforingja og -flokksins, voru fjarlægðar í upphafi sjötta áratugar síðustu aldar til þess að sporna gegn frekari dýrkun á nasisma. Íhugað var að eyða Arnarhreiðrinu en því leyft að standa vegna annarra sjónarmiða. Nú er það brunnið og þýsk yfirvöld hafa lýst yfir að húsið verði endurreist. Táknmynd Arnarhreiðursins er því aftur til umræðu; hvað þýðir það að endurreisa nasískt mannvirki 2026?
Málið er skoðað nánar í þættinum. Við sögu kemur einnig samtal við 96 ára konu um ljósmyndir, persónulegt bókasafn og sögugrúsk Illuga Jökulssonar og ýmislegt fleira. Þörf mannsins fyrir að komast í návígi við sögufræga staði og muni er velt upp, sem og mismunandi afstöðu til varðveislu söguminja.
Í þættinum er ráfað á milli þess gamla og nýja með hjálp gamalla hljóðbrota úr safnkistu Ríkisútvarpsins. Rætt er við samtímafólk þegar möguleiki er eða einhvern sem tengist umræddum upptökum á einhvern hátt. Því stóra í bland við það smáa er velt upp, rifjaðir upp misáhugaverðir atburðir og horfin og óhorfin æviskeið. Sögur sem snertu marga í einu, sem og persónulegar sögur sem snertu aðeins fáa, jafnvel aðeins einn. Hlustunarferðalög án upphafs og endis.

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.