Meining

Jósefssystur

Árið 1896 komu til landsins fjórar nunnur úr reglu St. Jósefs. „Þetta eru neyðarsveitir, svipað og ýmsar Rauða kross eða hjálparsveitir sem eru sendar til þróunarlanda í dag,“ eins og Ólafur H. Torfason orðaði það. Hann skráði á sínum tíma hundrað ára sögu systranna á Íslandi.

Í þættinum heyrum við úr dagbókum Systur Clementiu eldri sem var í hópi þeirra fyrstu sem komu til landsins. St. Jósefssystur eru þekktar fyrir ýmis brautryðjendastörf í Reykjavík. Þær reistu m.a. fyrsta sjúkrahúsið með nútímasniði, gerðu fyrsta holræsið í borginni og veittu sjúklingum sínum hreint vatn úr brunni sem þær létu grafa. Í þættinum skoðum við tíma Jósefssystra hér á landi út frá áðurnefndri dagbók og viðtalsbrotum úr safni RÚV. Við sögu koma jarðskjálftar, bagalegar aðstæður Íslendinga fyrir og um aldamótin 1900, hnignun kaþólskra nunna á heimsvísu undanfarna hálfa öld og kynferðislegt ofbeldi presta á nunnum. Á síðustu tveimur áratugum hafa nunnur víðast hvar í heiminum stigið fram og greint frá kynferðislegu ofbeldi og misnotkun kaþólskra presta. Frásagnir þeirra varpa ljósi á vandamál sem enn er lítið rætt opinberlega.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Meining

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Þættir

,