Enn mælist SO2, hálf Grindavík rafmagnslaus, skjöl og drónar
Mælingar í dag sýna enn brennisteinsdíoxíð yfir kvikuganginum norður af Grindavík. Það er vísbending um að kvika sé yfir 500 metrum á einhverjum stöðum.
Hálf Grindavík varð rafmagnslaus undir kvöld. Rafmagnslaust er austan Víkurbrautar.
Verðmætabjörgun hélt áfram í bænum í dag. Grindvíkingur, sem hefur reynt að komast heim tvo daga í röð án árangurs, gagnrýnir upplýsingagjöf og skipulag stjórnenda.
Skjölum og gögnum sem varða mikilvæga hagsmuni Grindvíkinga var bjargað í dag.
Nú er drónar notaðir í fyrsta sinn hérlendis til að meta tjón eftir eftir náttúruhamfarir.