Ísraelski herinn heldur áfram umsátri um Gaza og bíður skipunar Ísraelsstjórnar um innrás. Á meðan er algert hörmungarástand í uppsiglingu meðal íbúa Gaza.
Aðeins klukkustund er eftir af kjörfundi í Póllandi, mikil eftirvænting ríkir þar sem útlit er fyrir að afar mjótt verði á munum.
Fleira ungt fólk leitar til Stígamóta vegna kynferðislegs ofbeldis en áður. Talskona samtakanna segir að klám ýti undir kynbundið ofbeldi og hafi áhrif á eðli þess ofbeldis sem sé beitt.
Aldursgreining á glerbrotum sem fundust við fornleifauppgröft í Danmörku bendir til þess að híbýli fólks á víkingaöld hafi haft glerrúður í gluggum. Það er mun fyrr en áður var talið.