54 gefa skýrslu í Bankastræti Club-málinu svokallaða. Aðalmeðferð hefst á morgun og eru starfsmenn Héraðsdóms Reykjavíkur í óða önn að undirbúa veislusal í Grafarholti undir dómsmálið.
Osiris-Rex, geimhylkið sem lenti síðdegis í dag, eftir sjö ára ferðalag, hefur verið flutt í herstöð Bandaríkjahers. Vísindamenn fá sýni í hendurnar á morgun.
Íslenskum hauskúpum, sem hafa verið í kjallara Harvard-náttúruminjasafnsins í tæp hundrað og tuttugu ár, verður mögulega skilað. Þær voru teknar í kirkjugarði í Haffjarðarey sumarið 1905.
Kaffilaust er um helgar í Grænumörk, þjónustumiðstöð aldraðra á Selfossi, íbúum í nágrenninu til ama. Ástæðan er breyting á vaktaplani.