Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 9. nóvember 2026

Matvöruverð hækkar þrátt fyrir að verslanir hafi fryst og lækkað verð á ýmsum vörum.

Bandaríkjaforseti segir að stefna stjórnvalda í málefnum innflytjenda hafi gengið of langt og skaðað Repúblikana í þingkosningum.

Þrítugasta og fyrsta loftslagsráðstefna Sameinuðu Þjóðanna - COP-31 þrjátíu og eitt - var sett í Tyrklandi í morgun.

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hafa orðið föður sínum að bana í Kópavogi í sumar.

Það stefnir í taprekstur á hafnarsjóði Vesturbyggðar vegna þess að Arnarlax hefur ekki greitt eldisgjöld á árinu. Illa gengur að semja um gjöldin og bæjarstjórinn vill að lögum verði breytt.

24 ára Pólverji sem skaut sex til bana og særði sextán í Kraká í Póllandi um helgina lést í morgun.

Kári Stefánsson segir ekki rétt að nýtt þyngdarstjórnunarlyf Amgen sé byggt á rannsóknum á íslensku erfðaefni og uppgötvunum hérlendra vísindamanna.

Og tveir leikir eru framundan í undankeppni HM í körfubolta síðar í mánuðinum, landsliðshópurinn var kynntur í morgun.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,