
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Forsætisráðherra Frakklands ætlar að leyfa borgarstjórum að setja á útgöngubann. Ríkisstjórnin kom saman á neyðarfundi í morgun.
Úkraínuforseti segir að engar viðvaranir hafi borist frá bandamönnum um eldflauga- og drónaárásir sem Rússar gerðu í nótt. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna neitar því að dregið hafi verið úr upplýsingagjöf til Úkraínumanna.
Ríkissaksóknari hefur til skoðunar að áfrýja sýknudómi Landsréttar yfir manni sem var sakfelldur fyrir nauðgun í héraði. Tveir dómarar af þremur töldu ósannað að hann hefði brotið á konu. Hún hefði samþykkt harkalegt kynlíf.
Ekkert verður af áformum um byggð í Hafnarfirði fyrir farandverkafólk. Þau lögðust illa í íbúa.
Sendlar Wolt íhuga næstu skref í kjarabaráttunni. Þeir komu til fundar hjá Eflingu í morgun.
Mnntamálaráðuneytið hefur skipt um skoðu um birtingu niðurstaðna PISA-könnunarinnar í fyrra og hyggst upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla sem þess óska um niðurstöður sínar.
Þrír hlauparar í landsliðinu í bakgarðshlaupum hafa hlaupið í á þriðja sólarhring í landsliðakeppni Bakgarðshlaupa. Landslið Japans leiðir keppnina en Ísland er sem stendur í 24.sæti.

Útvarpsfréttir.