
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Fimm menn sem voru handteknir í Bretlandi í gær grunaðir um hryðjuverk eru allir breskir ríkisborgarar búsettir í Lundúnum. Íbúar segja öryggi hafa verið hert við Fairford-herflugvöllinn nokkrum dögum fyrir handtökurnar.
Rúmlega tuttugu starfsmönnum Arion banka hefur verið sagt upp. Uppsagnirnar taka flestar gildi í dag.
Samninganefnd Icelandair fundar hjá ríkissáttasemjara í dag, í tveimur kjaradeilum – við Flugvirkjafélag Íslands og við Félag íslenskra atvinnuflugmanna.
Verkalýðsforingi segir stjórnvöld og sveitarfélög ekki hafa staðið vaktina í baráttunni við verðbólgu. Hagar lækkuðu í dag verð á þúsund vörum í Bónus og Hagkaup.
Leiðtogi Sósíaldemókrata í Svíþjóð ætlar að skila stjórnarmyndunarumboði eftir að hafa reynt að mynda stjórn í tíu daga. Líklegast er að Ulf Kristersson, forsætisráðherra og leiðtogi Moderatana fái umboðið.
Óánægja foreldra í Hafnarfirði með nýtt fyrirkomulag frístundastyrkja fer vaxandi. Ríflega 300 hafa skrifað undir áskorun til bæjarins og segja breytinguna geta kostað fjölskyldur allt að 38 þúsund krónur á hvert barn.
Sagan um ísfólkið er á leiðinni á sjónvarpsskjáinn tæpri hálfri öld eftir að bækur Margitar Sandemo slógu í gegn.

Útvarpsfréttir.