
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Flugvirkjar Icelandair aflýstu verkfalli í morgun eftir að fyrir lá að lög yrðu sett á aðgerðir þeirra. Flugvirkjar og félagið setjast aftur að samningaborði og hafa fjórar vikur til að ná saman. Ferðir mörg þúsund farþega röskuðust í morgun en allt flug Icelandair síðdegis er á áætlun.
Samdráttur í byggingariðnaði og óstöðugleiki á alþjóðlegum mörkuðum valda fjármálastöguleikanefnd Seðlabanka Íslands einna helst áhyggjum.
Embættismenn frá Íran og Bandaríkjunum ræddu saman í New York í gær. Skömmu áður sagðist Bandaríkjaforseti geta gereytt íslamska lýðveldinu ef samningar næðust ekki.
Sex voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á stóru fíkniefna- og peningaþvættismáli.
Wolt býður ekki öllum sendlum sínum til fundar á morgun vegna kjara sendlanna. Aðeins fjórir af mörg hundruð fá að funda með fyrirtækinu. Wolt virðist hafa gert ráð fyrir að sendlarnir veldu sér talsmenn til að senda á fundinn.
Franskur kaupsýslumaður var náðaður í Aserbaísjan í morgun. Málið er talið tengjast hörðum deilum innan ESB vegna refsiaðgerða gegn Rússum.
Rúm sjötíu prósent nýrra ríkisstarfsmanna vinna í heilbrigðisþjónustu. Þessa aukningu má að hluta rekja til þess að öldrunarþjónusta hefur færst frá sveitarfélögum til ríkisins á síðustu árum.
Kvennalið FH mætir stórliði Frankfurt í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins í fótbolta í dag. Guðni Eiríksson segir aðstöðumun félaganna gífurlegan en að ungt lið FH sé klárt í slaginn.

Útvarpsfréttir.