Úrslit þingkosninga í Svíþjóð verða ekki endanlega ljós fyrr en á miðvikudag. Aðeins munar þremur þingmönnum á rauðu og bláu blokkinni þegar 200 þúsund atkvæði eru ótalin.
Samtök atvinnulífsins segja þörf á samstilltu átaki fyrirtækja ríkis og sveitarfélaga í baráttu við verðbólgu. Breyta þurfi vinnumarkaðsmódelinu og rjúfa vítahring launaskriðs og verðbólgu.
Áætlunarflug til Vopnafjarðar og Þórshafnar er í uppnámi. Ríkið hefur ekki samið um framhald þess, það greiddi að meðaltali 107 þúsund krónur með hverjum farþega á leiðinni í hitteðfyrra.
Formaður Flugvirkjafélags Íslands segir, forstjóra Icelandair, hafa dreift áróðri og reynt að hafa áhrif á flugvirkja. Atkvæðagreiðslu þeirra um verkfallsaðgerðir lauk á hádegi.
Fyrstu ráðherrar Skotlands, Wales og Norður-Írlands, segja að tími bresks yfirvalds frá Westminster í þessum löndum sé á enda.
Haustfundir Norðurlandaráðs byrja í Reykjavík í dag, Staðan á norðurslóðum í breyttu alþjóðakerfi verður ofarlega á baugi hjá norrænum þingmönnum.
Björgunarsveitin Ægir í Garði ætlar að selja húsnæði sitt, Þorsteinsbúð. Formaður sveitarinnar segir það ekki gert af fjárhagsástæðum.
Vinni Víkingar Keflavík í kvöld færast þeir skrefi nær því að halda í Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta. Víkingur hefur mikið forskot á toppi Bestu deildarinnar.