Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. september 2026

Úrslit þingkosninga í Svíþjóð verða ekki endanlega ljós fyrr en á miðvikudag. Aðeins munar þremur þingmönnum á rauðu og bláu blokkinni þegar 200 þúsund atkvæði eru ótalin.

Samtök atvinnulífsins segja þörf á samstilltu átaki fyrirtækja ríkis og sveitarfélaga í baráttu við verðbólgu. Breyta þurfi vinnumarkaðsmódelinu og rjúfa vítahring launaskriðs og verðbólgu.

Áætlunarflug til Vopnafjarðar og Þórshafnar er í uppnámi. Ríkið hefur ekki samið um framhald þess, það greiddi meðaltali 107 þúsund krónur með hverjum farþega á leiðinni í hitteðfyrra.

Formaður Flugvirkjafélags Íslands segir, forstjóra Icelandair, hafa dreift áróðri og reynt hafa áhrif á flugvirkja. Atkvæðagreiðslu þeirra um verkfallsaðgerðir lauk á hádegi.

Fyrstu ráðherrar Skotlands, Wales og Norður-Írlands, segja tími bresks yfirvalds frá Westminster í þessum löndum á enda.

Haustfundir Norðurlandaráðs byrja í Reykjavík í dag, Staðan á norðurslóðum í breyttu alþjóðakerfi verður ofarlega á baugi hjá norrænum þingmönnum.

Björgunarsveitin Ægir í Garði ætlar selja húsnæði sitt, Þorsteinsbúð. Formaður sveitarinnar segir það ekki gert af fjárhagsástæðum.

Vinni Víkingar Keflavík í kvöld færast þeir skrefi nær því halda í Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta. Víkingur hefur mikið forskot á toppi Bestu deildarinnar.

Birt

14. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,