Fjármálaráðherra segir að gjaldskrárhækkanir um áramót hafi hverfandi áhrif á verðbólgu. Sótt var að ráðherranum þegar hann mælti fyrir fjárlagafrumvarpinu í morgun.
Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi menntamálaráðherra er ósáttur við hvernig brotthvarf hans úr ráðherrastóli og síðar Flokki fólksins bar að. Sögusagnir hafi bitnað á fjölskyldu hans.
Íslendingur sem átti í viðskiptum við leigufélagið Sólarmegin tapaði að minnsta kosti þremur milljónum króna. Hann segir eigandann hafa lofað sér íbúð sem hann fékk aldrei.
Borgarstjóri segir líklegt að fleirum verði sagt upp í áframhaldandi hagræðingu í Reykjavík. Hún er ánægð með árangur meirihlutans fyrstu hundrað dagana.
Bandaríkjaforseti lofar að allir Bandaríkjamenn fái 5.000 dollara ef Repúblikanar halda meirihluta á þinginu í kosningum í nóvember.
Heimild í fjárlagafrumvarpi til að selja flugstöðina á Húsavík hefur vakið hörð viðbrögð í Norðurþingi. Íbúar telja hana mikilvæga fyrir byggðina og öryggi sitt. ISAVIA telur ekki að áætlunarflug hefjist aftur í bráð.
Mynd Bandaríkjaforseta sem sýnir Ísland og fleiri ríki sveipuð bandarískum fána kom til tals í kappræðum í gær fyrir þingkosningar í Svíþjóð.
Barnaheill og Geðhjálp eru á ferð um landið og hitta unglinga og foreldra á Patreksfirði í dag til að ræða samskipti tengsl og líðan. 10. september er alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna.