Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 10. september 2026

Fjármálaráðherra segir gjaldskrárhækkanir um áramót hafi hverfandi áhrif á verðbólgu. Sótt var ráðherranum þegar hann mælti fyrir fjárlagafrumvarpinu í morgun.

Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi menntamálaráðherra er ósáttur við hvernig brotthvarf hans úr ráðherrastóli og síðar Flokki fólksins bar að. Sögusagnir hafi bitnað á fjölskyldu hans.

Íslendingur sem átti í viðskiptum við leigufélagið Sólarmegin tapaði minnsta kosti þremur milljónum króna. Hann segir eigandann hafa lofað sér íbúð sem hann fékk aldrei.

Borgarstjóri segir líklegt fleirum verði sagt upp í áframhaldandi hagræðingu í Reykjavík. Hún er ánægð með árangur meirihlutans fyrstu hundrað dagana.

Bandaríkjaforseti lofar allir Bandaríkjamenn fái 5.000 dollara ef Repúblikanar halda meirihluta á þinginu í kosningum í nóvember.

Heimild í fjárlagafrumvarpi til selja flugstöðina á Húsavík hefur vakið hörð viðbrögð í Norðurþingi. Íbúar telja hana mikilvæga fyrir byggðina og öryggi sitt. ISAVIA telur ekki áætlunarflug hefjist aftur í bráð.

Mynd Bandaríkjaforseta sem sýnir Ísland og fleiri ríki sveipuð bandarískum fána kom til tals í kappræðum í gær fyrir þingkosningar í Svíþjóð.

Barnaheill og Geðhjálp eru á ferð um landið og hitta unglinga og foreldra á Patreksfirði í dag til ræða samskipti tengsl og líðan. 10. september er alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna.

Birt

10. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,