Hrekkjavaka, uppskerulok og óhugnanlegur gróður
Gróðurríkið spilar stórt hlutverk í hrekkjavöku og ýmissi hjátrú og hefðum sem henni tengjast. Í þættinum er hrekkjavaka sett í samhengi við uppskerulok, trúarsiði, Allra heilagra…
Gróðurríkið spilar stórt hlutverk í hrekkjavöku og ýmissi hjátrú og hefðum sem henni tengjast. Í þættinum er hrekkjavaka sett í samhengi við uppskerulok, trúarsiði, Allra heilagra messu, leiki, nornir og galdrajurtir. Rætt er við Vilmund Hansen og Steinar Björgvinsson um alrúnu, gaddepli, eitraðar plöntur af náttskuggaætt, grasker, vofuleg tré eins og alaskasýpris og þallir, sem og kjötætuplöntur og sníkjuplöntur úr íslensku flórunni.
Viðmælendur: Vilmundur Hansen og Steinar Björgvinsson.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.