23. Hellisgerði: Gróður og saga
Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs.
Í þættinum er rýnt í risaeðlurnar í umhverfi okkar – alaskaaspir og sitkagreni. Rætt er um fellingar á stórum trjám. Þátturinn hverfist þá einnig um keðjusögina og þá sem vinna með slíkt verkfæri.
Viðmælendur eru Hallgrímur Jón Hallgrímsson, Steinar Björgvinsson og Guðrún Þóra Jóhannsdóttir.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.