Litur í lífið: Haustlaukar, haustlitir og garðhúsið
Í þættinum er fjallað um úrval litríkra haustlauka og gróðursetningu þeirra sem fer fram í september og október og jafnvel lengur. Rætt er um mismunandi tegundir haustlauka og eiginlega…
Í þessum þætti er fjallað um nokkrar vorblómstrandi tegundir – til að mynda páskaliljur, töfratré og kúrileyjakirsi (rósakirsi – cherry blossom). Nokkrur vorblóm eru skoðaðar út frá hlutverki sínu gagnvart býflugum en einnig eru þær settar í samhengi við ummyndanir Óvíds. Kastljósinu er beint sérstaklega að tegundum sem henta býflugum en eru eitraðar mönnum.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.