23. Hellisgerði: Gróður og saga
Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs.
Í þessum þriðja þætti er fjallað um samvinnu mismunandi tegunda í skógum – hvoru tveggja út frá vísindum og ævintýrum. Rætt er um jákvæð skynáhrif og leyndardóma skógarins. Þátturinn stendur í samhengi við Alþjóðadag skóga. Viðmælendur sinna skógarumhirðu, starfa fyrir skógræktarfélög eða við rannsóknir á skógarumhverfinu.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.