16:05
Hljóðvegur 1
Vikan botnuð, útvarpskona í sviflínu og líf og fjör á Austurlandi

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þátturinn byrjar á nýjum lið sem kallast Botnum vikuna. Dagur Ágústsson er hagyrðingur vikunnar en hann flutti fyrri part sem viðmælendur og hlustendur botnuðu.

Hólmfríður og Jóhann Alfreð voru á flakki.

Hólmfríður var á ferð og flugi um Suðurlandið en Jóhann Alfreð hitti góða viðmælendur á Egilsstöðum. Þar komu við sögu Stefán Bogi Sveinsson, Þorsteinn Bergsson, Jakob Birgisson og Snædís Snorradóttir.

Steiney stýrði skútunni úr Efstaleiti þar sem Hugleikur Dagsson kom í heimsókn.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,