07:03
Morgunvaktin
Bandaríkin 250 ára, þjóðlagahátíð og sögur af sígildri tónlist

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Bandaríkin eru 250 ára á morgun, 4. júlí. Við spurðum Guðmund Hálfdánarson, prófessor emeritus í sagnfræði, hvenær þau urðu að því stórveldi og ríki sem við þekkjum í dag. Þá ræddi Guðmundur um stöðu ríkisins á þessum tímamótum.

Gunnsteinn Ólafsson tónskáld var í símanum frá Siglufirði, þar sem Þjóðlagahátíðin fer nú fram. Gunnsteinn er listrænn stjórnandi hátíðarinnar og sagði okkur frá. Það setur svip sinn á hátíðina í ár að haldið er samhliða upp á 20 ára afmæli Þjóðlagaseturs séra Bjarna Þorsteinssonar.

Magnús Lyngdal var svo með okkur í síðasta hluta þáttarins og fjallaði um sígilda tónlist. Eða öllu heldur sögur um samskipti og samskiptaörðugleika í heimi klassískrar tónlistar.

Tónlist:

Brimkló - Upp í sveit.

Melchior - Steinn.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,