Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bandaríkin eru 250 ára á morgun, 4. júlí. Við spurðum Guðmund Hálfdánarson, prófessor emeritus í sagnfræði, hvenær þau urðu að því stórveldi og ríki sem við þekkjum í dag. Þá ræddi Guðmundur um stöðu ríkisins á þessum tímamótum.
Gunnsteinn Ólafsson tónskáld var í símanum frá Siglufirði, þar sem Þjóðlagahátíðin fer nú fram. Gunnsteinn er listrænn stjórnandi hátíðarinnar og sagði okkur frá. Það setur svip sinn á hátíðina í ár að haldið er samhliða upp á 20 ára afmæli Þjóðlagaseturs séra Bjarna Þorsteinssonar.
Magnús Lyngdal var svo með okkur í síðasta hluta þáttarins og fjallaði um sígilda tónlist. Eða öllu heldur sögur um samskipti og samskiptaörðugleika í heimi klassískrar tónlistar.
Tónlist:
Brimkló - Upp í sveit.
Melchior - Steinn.

07:30

08:30
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um borgina sögufrægu Timbúktú í norðanverðu Malí. Þegar vígamenn íslamista tóku borgina yfir á vormánuðum 2012 tókst bókavörðum borgarinnar á nær ótrúlegan hátt að forða þúsundum ómetanlegra fornhandrita frá glötun.

Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Það vakti athygli að 17 ára piltur Einar Dagur Brynjarsson hjólaði hringinn í kringum landið, um 1300 kílómetra á 10 dögum, til styrktar Barnaspítala Hringsins. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem Einar Dagur hjólar fyrir Hringinn, en fyrir tveimur árum hjólaði hann ásamt vini sínum frá Reykjavík til Akureyrar. Hjólaferðin var afar krefjandi og mótvindur stóran hluta leiðarinnar. Með í för voru vinkonur Einars og afi Einars, Einar J. Hilmarsson sem keyrði á húsbíl eftir honum. Ástæðan fyrir þessu framtaki Einars Dags er sú að hann fæddist lungnaveikur og þurfti á aðstoð að halda á Barnaspítala Hringsins. Þeir Einar Dagur og afi Einar komu í þáttinn í dag og sögðu okkur alla ferðasöguna.
Og svo var auðvitað fugl dagsins á sínum stað.
Tónlistin í þættinum:
Sól bros þín / Bubbi (Bubbi)
Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Guðmundur Óskar Guðmundsson og Helgi Björns, texti Atli Bollason og Helgi Björnsson)
Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
Fly Me to the Moon / Diana Krall (Bart Howard)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Fullt af spurningum, fullt af svörum!
Krakkar á öllum aldri spyrja spurninga um allt milli himins og jarðar og sérfræðingar svara.
Er eitthvað sem þig langar til að vita? Taktu upp spurninguna þína, mundu eftir að segja okkur nafnið þitt og aldurinn (þarf ekki að vera fullt nafn) og sendu í tölvupósti á hvadviltuvita@ruv.is.
Umsjón: Hera Guðmundsdóttir.
Dagur Atli, 12 ára, spyr hver sé erfiðasta íþróttagreinin. En hvað er erfitt við íþróttir? Stefán Pálsson sagnfræðingur svarar.
Útvarpsfréttir.
Rífa á stóran hluta stúku Laugardalslaugar. Stúkan, sem er þekkt kennileiti í höfuðborginni, er talin hættuleg. Verkfræðingar hvetja til tafarlausra aðgerða.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna var gerður afturreka með róttækar hugmyndir um að stórfækka hermönnum í Evrópu, segir í Wall Street Journal. Marco Rubio, utanríkisráðherra og þjóðaröryggisráðgjafi, er sagður hafa stigið á bremsuna.
Unnið er að því að rífa íbúðahús við Víkurbraut í Grindavík. Húsin við götuna eru nánast öll ónýt eftir jarðhræringar. Við ræðum við nýráðinn bæjarstjóra í fréttatímanum.
Vegagerðin hefur lokað hluta vegarins yfir Kjöl vegna rútu sem situr föst í eðju. Fjallvegir eru víða blautir og óvíst hvenær hægt verður að opna Sprengisand.
Þrátt fyrir neikvæða umræðu um samgöngur til og frá Vestmannaeyjum á bæjarstjórinn von á þúsundum gesta á Goslokahátíð um helgina.
Tónlistarkonan Taylor Swift og íþróttamaðurinn Travis Kelce eru sögð ætla að ganga í það heilaga í New York í kvöld. Brúðkaup aldarinnar, segja sérfróðir.
Eftir tap fyrir Ítalíu í gærkvöld verður íslenska karlalandsliðið í körfubolta að sigra Bretla ytra á sunnudag til að eiga möguleika á að komast á HM.
Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Árið 1955 flutti Sigurður Jónsson á Brún (1898-1968) erindi sem hann nefndi Minning hests. Þar sagði hann á hjartnæman hátt frá ævi síns eftirlætis hests allt frá því að hesturinn fæddist í Blöndudal árið 1904 og þar til hann var felldur, Sigurði til óblandinnar sorgar.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Abeid, Hadhoum - Se alarga la noche.
Hespèrion XXI - Der makam-? Hüseyni Semâ'i.
Greisha, Salwa Abou, Ezzayakoum - Wainek.
Dimensión Latina - Gavilan.
Mendoza, Lydia - Un nuevo amanecer.
Listafólk frá Bólivíu - Wara.
Nasibov, Edalat - Fakhri Havasi.
Meteku, Teshome - Mot adeladlogn.
Super Mama Djombo - Fidjo di mi.
Tarika - Sento.
Hijas del sol - Ö wató wa baye = The ship of man.
Uwaifo, Victor - Idogo.

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 21. maí 2017. Þema þáttarins voru söfn.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar þessa viku, og næstu reyndar líka, er helgaður 50 ára afmælisplötu Félags íslenskra hljómlistarmanna sem kom út síðla árs 1982.
Félag íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, er stéttarfélag tónlistarmanna, stofnað að frumkvæði þeirra Bjarna Böðvarssonar og Þórhalls Árnasonar 28. febrúar 1932. Í febrúar 1982 var fimmtíu ára afmæli félagsins fagnað með viku tónlistarhátíð þar sem íslensk tónlistarsaga var rifjuð upp á fjölda tónleika víða á Stór-Reykjavíkursvæðinu, á skemmtistöðum og sjúkrastofnunum. Hátíðin var tekin upp og gefin út á tvöfaldri hljómplötu seinna á afmælisárinu.
Í dag hlýðum við á fyrri plötu albúmsins, A og B hlið, sem segja má að spanni tónlist frá upphafi tuttugustu aldar vel fram á sjötta áratug aldarinnar, en í næstu viku bregðum við seinni plötunni undir nálina og hlýðum á tónlist frá sjöunda og áttunda áratugnum.
A-hlið fyrri plötu afmælisútgáfunnar hefst með laginu Á persnesku markaðstorgi í flutningi útvarpshljómsveitar í anda Þórarins Guðmundssonar. Þá leikur danshljómsveit í anda Bjarna Böðvarssonar Little Brown Jug, Hljómsveit Jónatans Ólafssonar flytur valsasyrpu, Hljómsveit Aage Lorange Tanze Möchte Ich, Dixieland-hljómsveit Árna Ísleifssonar At a Georgia Camp Meeting, Hljómsveit Grettis Björnssonar If I Had You og Haukur Morthens og hljómsveit Fjörlaufa smára. Lagið Komdu fljótt, kæra vor sem Ásgeir Sverrisson og hljómsveit fluttu komst ekki fyrir vegna plássleysis.
B-hliðin hefst með því að K.K. sextettinn flytur Isn't It Romantic og Hyllingu no 1 (Sunday Kind Of Love), Hljómsveit Braga Hlíðberg Bændapolka, Árni Elfar og hljómsveit East Of The Sun, Hljómsveit Björns R. Einarssonar Chi, Baba, Chi Baba, Hljómsveit Karls Lilliendahl Manstu vinur, Sextett Ólafs Gauks lögin Segðu ekki nei, Bjössi á Hól og Þú ert minn súkkulaðís og Ragnar Bjarnason og Jón Sigurðsson syngja Úti í Hamborg. Lokalag plötunnar, Vor við flóann með Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar, komst ekki fyrir vegna plássleysis.
Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.
Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.
„Heima er best" segir útsaumurinn og ekki lýgur hann. Fyrirbærinu „heima" fylgja hinsvegar ótal tilfinningar og að „eiga heima" einhversstaðar snýst ekki bara um búsetu heldur það að tilheyra. En hvað ef fólk gerir ósjálfrátt ráð fyrir því að þú sért útlendingur? Grár köttur tekur fyrir hugtakið „heima" útfrá sögu leikkonunnar Maríu Thelmu Smáradóttur.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Sérfræðingur við íhaldssama hugveitu í Washington ráðleggur íslenskum stjórnvöldum að rækta áfram sambandið við embættismenn og stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, en ekki endilega æðstu leiðtoga landsins. Hann telur að NATO lifi af ólgusjó.
Leiðtogafundur NATO-ríkjanna hefst í Ankara í Tyrklandi eftir helgi. Björn Malmquist verður þar og fer yfir hverju er við að búast.
Rétt þjónusta á réttum stað. Þetta er eitt af leiðarstefjum lýðheilsu- og heilbrigðisstefnu íslenskra stjórnvalda. En það vantar töluvert upp á að þetta sé haft að leiðarljósi í heilbrigðisþjónustu við fólk sem býr við heimilisleysi. Rætt við Kristínu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Rótarinnar.

frá Veðurstofu Íslands
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög frá ýmsum tímum sem hafa verið sungin við ljóð austfirska skáldsins og bóndans Pál Ólafssonar. Ólafur Þórarinsson syngur Sumarkveðju, Ingibjörg Þorbergs og Smárakvartettinn í Reykjavík syngja Hríslan og lækurinn, Tendra flytur Lóan er komin, Felix Bergsson og Valgerður Guðnadóttir syngja Ég skal kveða og kveða nóg, Ragnheiður Ólafsdóttir syngur Sæll var ég þá, Klara Ósk Elíasdóttir syngur Sofðu blessað barnið mitt, Óskar Pétursson syngur lag við ljóð sem heitir Döggin, Melchior flytja lag við ljóð sem heitir Þögul nóttin, Ösp Eldjárn syngur um Ástarnetið og Þórarinn Hjartarson og Ragnheiður Ólafsdóttir slá botninn með lagi við ljóð Páls sem heitir Ellin. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Það vakti athygli að 17 ára piltur Einar Dagur Brynjarsson hjólaði hringinn í kringum landið, um 1300 kílómetra á 10 dögum, til styrktar Barnaspítala Hringsins. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem Einar Dagur hjólar fyrir Hringinn, en fyrir tveimur árum hjólaði hann ásamt vini sínum frá Reykjavík til Akureyrar. Hjólaferðin var afar krefjandi og mótvindur stóran hluta leiðarinnar. Með í för voru vinkonur Einars og afi Einars, Einar J. Hilmarsson sem keyrði á húsbíl eftir honum. Ástæðan fyrir þessu framtaki Einars Dags er sú að hann fæddist lungnaveikur og þurfti á aðstoð að halda á Barnaspítala Hringsins. Þeir Einar Dagur og afi Einar komu í þáttinn í dag og sögðu okkur alla ferðasöguna.
Og svo var auðvitað fugl dagsins á sínum stað.
Tónlistin í þættinum:
Sól bros þín / Bubbi (Bubbi)
Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Guðmundur Óskar Guðmundsson og Helgi Björns, texti Atli Bollason og Helgi Björnsson)
Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
Fly Me to the Moon / Diana Krall (Bart Howard)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.
Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.
„Heima er best" segir útsaumurinn og ekki lýgur hann. Fyrirbærinu „heima" fylgja hinsvegar ótal tilfinningar og að „eiga heima" einhversstaðar snýst ekki bara um búsetu heldur það að tilheyra. En hvað ef fólk gerir ósjálfrátt ráð fyrir því að þú sért útlendingur? Grár köttur tekur fyrir hugtakið „heima" útfrá sögu leikkonunnar Maríu Thelmu Smáradóttur.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen.

Útvarpsfréttir.
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Við byrjuðum á að tala um eldsneytisverð á Íslandi. Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birti í gær kemur fram að í aðdraganda þess að kílómetragjald var tekið upp hafi álagning á eldsneyti hækkað í samanburði við önnur Evrópulönd. Álagning á bæði díselolíu og bensín hefur hækkað mikið frá 2022. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda kom til okkar.
Á Akureyri stendur nú yfir Listasumar, sem er árlegur menningarviðburður drekkhlaðinn hvers konar viðburðum, tónleikum, listasýningum, gjörningum og ýmsu húllum-hæi um allan bæ. Og í dag, föstudag, er stór uppistandsdagur. Með yfirskriftinni „Á þetta að vera fyndið?“ hefur hópur heimafólks tekið hljóðnema í hönd og boðið gestum upp á að hlæja saman að lífinu, hversdagsleikanum, samböndum, samfélaginu síðustu mánuði og í þriðja sinn í kvöld. Sjúkraþjálfarinn Þórhallur Guðmundsson og Snæfríður Ingadóttir blaða- og leiðsögukona verða meðal uppistandara í kvöld og þau mættu í hljóðver okkar á Akureyri.
Hvað er í gangi um helgina? Hvert er fólk að fara og hvað á fólk að hafa í huga í umferðinni? Við rennum yfir það helsta sem er um að vera um helgina og fáum til okkar Árna Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjón lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Við ætlum að snúa okkur að þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildaviðræður Íslands að Evrópusambandinu sem verður 29. ágúst. Þorvaldur Gylfason doktor í hagfræði var gestur okkar. Hann hefur lengi verið já-megin, skrifaði sína fyrstu grein um mikilvægi þess að Íslendingar myndu ganga í Evrópusambandið árið 1987 og hefur verið óþreytandi síðan að skrifa og fjalla um þetta málefni. Hann skrifaði nýlega grein undir yfirskrifinni Stöndum saman þar sem hann hvetur landsmenn til að líta á þjóðarhag fremur en svæðisbunda hagsmuni þegar það kemur að atkvæðagreiðslunni. Við fórum með honum yfir hvers vegna hann ætlar að segja já í ágúst. Í næstu viku fáum við svo að heyra í fólki sem ætlar að segja nei.
Og við förum að sjálfsögðu yfir fréttir vikunnar. Það er þema hjá okkur í dag – fyrrum Rúvarar sem hafa gerst upplýsingafulltrúar. Þau Freyr Gígja Gunnarsson upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins og Hafdís Helga Helgadóttir upplýsingafulltrúi Samorku mættu og ræddu m.a. hvalveiðar, stóra kókaínmálið og HM í knattspyrnu.

07:30

08:30

Umsjón: Friðrik Ómar.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Rífa á stóran hluta stúku Laugardalslaugar. Stúkan, sem er þekkt kennileiti í höfuðborginni, er talin hættuleg. Verkfræðingar hvetja til tafarlausra aðgerða.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna var gerður afturreka með róttækar hugmyndir um að stórfækka hermönnum í Evrópu, segir í Wall Street Journal. Marco Rubio, utanríkisráðherra og þjóðaröryggisráðgjafi, er sagður hafa stigið á bremsuna.
Unnið er að því að rífa íbúðahús við Víkurbraut í Grindavík. Húsin við götuna eru nánast öll ónýt eftir jarðhræringar. Við ræðum við nýráðinn bæjarstjóra í fréttatímanum.
Vegagerðin hefur lokað hluta vegarins yfir Kjöl vegna rútu sem situr föst í eðju. Fjallvegir eru víða blautir og óvíst hvenær hægt verður að opna Sprengisand.
Þrátt fyrir neikvæða umræðu um samgöngur til og frá Vestmannaeyjum á bæjarstjórinn von á þúsundum gesta á Goslokahátíð um helgina.
Tónlistarkonan Taylor Swift og íþróttamaðurinn Travis Kelce eru sögð ætla að ganga í það heilaga í New York í kvöld. Brúðkaup aldarinnar, segja sérfróðir.
Eftir tap fyrir Ítalíu í gærkvöld verður íslenska karlalandsliðið í körfubolta að sigra Bretla ytra á sunnudag til að eiga möguleika á að komast á HM.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.
Þátturinn byrjar á nýjum lið sem kallast Botnum vikuna. Dagur Ágústsson er hagyrðingur vikunnar en hann flutti fyrri part sem viðmælendur og hlustendur botnuðu.
Hólmfríður og Jóhann Alfreð voru á flakki.
Hólmfríður var á ferð og flugi um Suðurlandið en Jóhann Alfreð hitti góða viðmælendur á Egilsstöðum. Þar komu við sögu Stefán Bogi Sveinsson, Þorsteinn Bergsson, Jakob Birgisson og Snædís Snorradóttir.
Steiney stýrði skútunni úr Efstaleiti þar sem Hugleikur Dagsson kom í heimsókn.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Sérfræðingur við íhaldssama hugveitu í Washington ráðleggur íslenskum stjórnvöldum að rækta áfram sambandið við embættismenn og stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, en ekki endilega æðstu leiðtoga landsins. Hann telur að NATO lifi af ólgusjó.
Leiðtogafundur NATO-ríkjanna hefst í Ankara í Tyrklandi eftir helgi. Björn Malmquist verður þar og fer yfir hverju er við að búast.
Rétt þjónusta á réttum stað. Þetta er eitt af leiðarstefjum lýðheilsu- og heilbrigðisstefnu íslenskra stjórnvalda. En það vantar töluvert upp á að þetta sé haft að leiðarljósi í heilbrigðisþjónustu við fólk sem býr við heimilisleysi. Rætt við Kristínu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Rótarinnar.

Fréttastofa RÚV.
Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.
Tveir meðlima hins alræmda "27 klúbbs" dóu á þessum degi og var þeirra minnst í þætti kvöldsins. Það voru annarsvegar Brian Jones sem fell frá 1969 og svo Jim Morrison sem lést 1971. Því var spilað nóg af The Doors og The Rolling Stones í bland við nóg af neglum úr sexunni.
Sveitapiltsins draumur - Hljómar
Break On Through (To The Other Side) - The Doors
Time Has Come Today - Chamber Brothers
Hello, Goodbye - The Beatles
The Last Time - The Rolling Stones
Heart Full Of Soul - the Yardbirds
My Generation - The Who
Alabama Song (Whisky Bar) - The Doors
Incense and Peppermints - Strawberry Alarm Clock
Pictures Of Matchstick Men - Status Quo
You Keep Me Hangin' On - Vanilla Fudge
Kling klang - Dátar
Paint It Black - The Rolling Stones
Gimme Some Lovin' - Spencer Davis Group
Good Lovin' - The Young Rascals
Love Me Two Times - The Doors
Born To Be Wild - Steppenwolf
Time Of The Season - The Zombies
Under My Thumb - The Rolling Stones
Sunny Afternoon - The Kinks
Summer in the City - The Lovin' Spoonful
Visions Of Johanna - Bob Dylan
Gvendur á Eyrinni - Dátar
People Are Strange - The Doors
Helter Skelter - The Beatles
Magic Carpet Ride - Steppenwolf
Mother's Little Helper - The Rolling Stones
Going Up The Country - Canned Heat
Five To One - The Doors
White Room - Cream
Street Fighting Man - The Rolling Stones
Voodoo Child (Slight Return) - Jimi Hendrix
The Weight - The Band
Ég veit að þú kemur - Trúbrot
Hello, I Love You - The Doors
Spirit In The Sky - Norman Greenbaum
Hush - Deep Purple
Let's Spend The Night Together - The Rolling Stones
Roadhouse Blues - The Doors
Green River - Creedence Clearwater Revival
L.A. Woman - The Doors

Föstudagstónar í teitið.