12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 3. júlí 2026

Útvarpsfréttir.

Rífa á stóran hluta stúku Laugardalslaugar. Stúkan, sem er þekkt kennileiti í höfuðborginni, er talin hættuleg. Verkfræðingar hvetja til tafarlausra aðgerða.

Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna var gerður afturreka með róttækar hugmyndir um að stórfækka hermönnum í Evrópu, segir í Wall Street Journal. Marco Rubio, utanríkisráðherra og þjóðaröryggisráðgjafi, er sagður hafa stigið á bremsuna.

Unnið er að því að rífa íbúðahús við Víkurbraut í Grindavík. Húsin við götuna eru nánast öll ónýt eftir jarðhræringar. Við ræðum við nýráðinn bæjarstjóra í fréttatímanum.

Vegagerðin hefur lokað hluta vegarins yfir Kjöl vegna rútu sem situr föst í eðju. Fjallvegir eru víða blautir og óvíst hvenær hægt verður að opna Sprengisand.

Þrátt fyrir neikvæða umræðu um samgöngur til og frá Vestmannaeyjum á bæjarstjórinn von á þúsundum gesta á Goslokahátíð um helgina.

Tónlistarkonan Taylor Swift og íþróttamaðurinn Travis Kelce eru sögð ætla að ganga í það heilaga í New York í kvöld. Brúðkaup aldarinnar, segja sérfróðir.

Eftir tap fyrir Ítalíu í gærkvöld verður íslenska karlalandsliðið í körfubolta að sigra Bretla ytra á sunnudag til að eiga möguleika á að komast á HM.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 21 mín.
,