19:00
Europe's biggest gig 2026

Rás 2 tekur þátt í stærsta útvarpsþætti Evrópu. Þátturinn er sendur út á fimm ríkisútvarpsstöðvum samtímis og er markmið hans að kynna nýja tónlist í hverju landi fyrir sig. Fulltrúi Íslands var hljómsveitin Spacestation. Stöðvarnar sem tóku þátt eru BBC Radio 1 í Bretlandi, RTE 2FM á Írlandi, RTP Antena 3 í Portúgal, WDR 1Live í Þýskalandi og RÚV Rás 2 á Íslandi.

Listamennirnir sem fram komu voru Sekou frá Bretlandi, panicbaby frá Þýskalandi, The Scratch frá Írlani, Spacestation frá Íslandi og MXGPU frá Portúgal.

Umsjón: Atli Már Steinarsson og Lovísa Rut Kristjánsdóttir.

Þulur á íslensku: Hulda G. Geirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 3 klst.
,