19:00
Tónleikur
Maurice Ravel

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Í dag fá hlustendur að heyra eina strengjakvartettinn sem Maurice Ravel samdi í flutningi Alba Berg kvartettsins. Í honum heyrast greinileg áhrif frá Debussy, enda samdi Ravel sinn kvartett að einhverju leyti með kvartett Debussys sem fyrirmynd eins og menn gerðu gjarnan, en hér eru líka greinileg áhrif frá Spáni og spænskri tónlist. Ravel var ættaður frá baskahéruðum Spánar í aðra ættina og leitaði gjarnan bæði á þær slóðir í tónsköpun sinni og enn sunnar, til gítartónlistar hinna sólríkari héraða.

Auk strengjakvartettins verður leikið hið þekkta verk Ravels, Pavane fyrir látna prinsessu, bæði á píanó eins og það var upphaflega samið og í hljómsveitarútsetningu Ravels sjálfs.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 48 mín.
e
Endurflutt.
,