19:50
Úr íslensku tónlistarlífi
Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Tónlistin í þættinum:

Á Sprengisandi, þjóðlag í útsetningu eftir Jón Ásgeirsson. Grímur Thomsen orti ljóðið. Einsöngvarakórinn syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi er Jón Ásgeirsson. Útvarpað í Þjóðlagakvöldi 1994.

Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Íslands; Páll Pampichler Pálsson, stjórnandi

Endurminningar smaladrengs, svíta í sex köflum fyrir hljómsveit, eftir Karl O. Runólfsson.

Svíta í sex köflum fyrir hljómsveit:

1. Vakað yfir túni

2. Útreiðartúr

3. Hjáseta

4. Töðugjöld

5. Á milli (Intermezzo)

6. Réttir

Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur, stjórnandi er Páll Pampichler Pálsson

Upptökuár vantar, verkinu var útvarpað 23. febrúar 1964.

Sjá upplýsingar í viðhengi. Úr viðhengi: "Höfundur óskar eftir að tekið sé fram við kynningu að inn í verkið eru fléttuð lög, sem voru á hvers manns vörum 1910-13 og íslensk þjóðlög"

Bergmál úr garðinum. Verk fyrir söngrödd, harmóníku og slagverk eftir Hauk Tómasson, samið við prósabrot eftir Thor Vilhjálmsson.

Tónlistarhópurinn KIMI flytur, en hópinn skipa mezzósópransöngkonan Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, harmóníkuleikarinn Jónas Ásgeir Ásgeirsson og Katerina Anagostodou slagverksleikari.

Hljóðritun frá frumflutningi verksins á tónlistarhátíðinni Seiglu í ágúst 2025. Tónleikarnir voru helgaðir aldarminningu Thors Vilhjálmssonar.

Kartöfluprinsessan úr verkinu Ó eilífi foss sem rambar á fossvegum Guðs - fyrir tvær söngkonur og sex hljóðfæraleikara, eftir Kolbein Bjarnason. Ljóðið orti Steinunn Sigurðardóttir.

Flytjendur: Herdís Anna Jónasdóttir, sópran; Hildigunnur Einarsdóttir, messósópran; Caput: Jónas Ásgeir Ásgeirsson, harmóníka; Guðrún Óskarsdóttir, semball; Elísabet Waage og Gunnhildur Einarsdóttir, hörpur; Frank Aarnink og Steef van Oosterhout, slagverk; Guðni Franzson, stjórnandi.

Hljóðritað 15.til 18. september 2023. Útgefið 2025.

Þeir sjá mig ekki meir í Ventadúr eftir Þuríði Jónsdóttur. Bernard de Ventadorn samdi textann. Flytjendur eru Benedikt Kristjánsson tenór og Ensemble Adapter. Hljóðritun gerð á Listahátíð í Reykjavík 2024 - á tónleikum sem báru yfirskriftina: Raddir úr blámanum. Georg Magnússon hljóðritaði fyrir Ríkisútvarpið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 35 mín.
,