16:05
Síðdegisútvarpið
Stefna á að prófa allar sundlaugar landsins, vinnumarkaðurinn útlit og horfur og golfklúbburinn í Vestmannaeyjum fær viðurkenningu

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Við byrjuðum þáttinn á að skoða hvað boðið verður upp á í Kveiksþætti kvöldsins og heyrðum brot úr þættinum.

Á vef Vinnumálastofnunnar er að finna færslu um að tvær tilkynningar um hópuppsagnir hafi borist Vinnumálastofnun í febrúar en alls var 69 starfsmönnum sagt upp störfum. Þar af 24 á sviði upplýsingatækni og 45 við vísindarannsóknir. En hver er staðan á vinnumarkaði? Erum við að sigla inn í aukið atvinnuleysi? Við heyrðum í Ástu Ásgeirsdóttur, deildarstjóra greiningardeildar Vinnumálastofnunnar.

Í dag er Spánarspjall á dagskrá Síðdegisútvarpsins. Jóhann Hlíðar Harðarson fór yfir áhugaverðar fréttir frá Spáni. Hann sagði okkur frá stjórnmálum, Sígaunum og sólmyrkva.

Þann 13. mars nk. verður leikritið Mömmó frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Leikstjóri er Agnar Jón Egilsson. Þetta verk hefur hlotið ótal alþjóðleg verðlaun. Aðalhlutverk eru í höndum Birnu Pétursdóttur og Hákons Jóhannessonar og þau komu til okkar í dag.

Þær Hildur Helgadóttir og Margrét Guðjónsdóttir eru báðar hjúkrunarfræðingar og sundkonur, en þar með er ekki allt upptalið. Þær eru í ákveðnu verkefni hvað sundlaugarnar varðar því þær hafa heimsótt 127 laugar sem eru á listanum sundlaugar.com. Því verkefni luku þær í Grímsey á árinu 2024. Í kjölfarið fóru þær svo að leita af öllum hinum laugunum sem eru fjölmargar og eru búnar að dýfa sér í alls 150 laugar. Þær komu og sögðu okkur betur frá.

Golfklúbbur Vestmannaeyja hlaut á dögunum tilnefningu sem einn af bestu golfvöllum Evrópu árið 2025. Við hringdum til Vestmannaeyja og heyrðum í framkvæmdarstjóranum Karli Haraldssyni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,