18:00
Kvöldfréttir útvarps
SA um kjarasamninga, Marco Rubio á Íslandi, skekkja í karlmennskukönnun og mótmæli í Frakklandi

Fréttir

Fréttir

Samtök atvinnulífsins segja mikilvægt að umræða um kjarasamninga byggist á staðreyndum og gagnkvæmri virðingu svo hægt sé að ná niðurstöðu. Þau hafna ásökunum um svik, sem þau segja einstaka fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar hafa talað um.

Stjórnmálafræðingur setur fyrirvara á niðurstöður skýrslu sem varpar ljósi á stöðu karlmanna á Norðurlöndunum. Líkur séu á að úrtakið hafi verið verulega skekkt.

Athafnamaður sem handtekinn var í Leifsstöð vegna rannsóknar á fíkniefna- og peningaþvættismáli hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag.

Mikil harka hefur verið í mótmælum ungmenna í Frakklandi síðustu daga og í dag missti unglingur höndina. Ungmennin krefjast þess að ástand skólabygginga verði bætt og kennarar fái betri laun.

Umsjón: HUgrún Hannesdóttir Diego

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 10 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,