11:03
Mannlegi þátturinn
MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Menntaskólinn í Reykjavík átti hvorki meira né minna en 180 ára afmæli síðasta fimmtudag. MR hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina, Lærði skólinn, Reykjavíkurskóli, Latínuskólinn eða Schola Reykjavicensis og svo frá árinu 1937 Menntaskólinn í Reykjavík. Sólveig Guðrún Hannesdóttir rektor MR var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir þessa merkilegu sögu skólans og sagði okkur frá ljósmyndasýningu sem verður allan okktóber þar sem ljósmyndum er varpað á framhlið skólahússins við Lækjargötu.

Alþjóðlegi kennaradagurinn er í dag og því var vel við hæfi að kynna tilnefningarnar til Íslensku menntaverðlaunanna í þættinum í dag. Verðlaunaafhendingunni verður svo sjónvarpað frá Bessastöðum 11. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: Fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, fyrir kennslu, fyrir þróunarverkefni og fyrir Iðn- og verkmenntun. Auk þess verða veitt sérstök hvatningarverðlaun. Guðfinna S Bjarnadóttir stjórnandi og eigandi í LC ráðgjöf og Magnavita kom í þáttinn og kynnti þessar 13 tilnefningar.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elísabet Katrín Friðriksdóttir verkefnastjóri á réttar- og öryggisgeðdeildunum á Kleppi. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elísabet talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Vaxtarræktarkonan einmanna e. Yukiko Motoya

Allt sem við hefðum getað orðið e. Sif Sigmarsdóttur

Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur

og óútgefna bók með vinnuheitið Umbreyting - leiðarvísir til framtíðar e. Guðrúnu Schmidt

Bókin um veginn e. Lao Tse

Dísa ljósálfur e. G.T. Rotman

Tónlist í þættinum:

Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)

Teach Your Children / Crosby, Stills, Nash and Young (Graham Nash)

Gamli skólinn / Mannakorn (Magnús Eiríksson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,