16:05
Víðsjá
Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Skúli Sverrisson byrjaði ungur að leika á rafbassa. Hann stundaði nám við tónlistarskóla FÍH en samferða námi lék hann með hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, djasspíanóleikara, fyrir dansi í naustinu. Síðar nam Skúli bassaleik við Berkley College of Music í Boston en að loknu námi flutti hann til New York borgar og bjó þar um árabil en heldur nú til í miðborg Reykjavíkur.

Á ferli sínum hefur Skúli komið víða við. Hann hefur gefið út margar plötur undir eigin nafni og starfað með listamönnum á borð við Lou Reed, Laurie Anderson, Ryuichi Sakamoto, Allan Holdsworth, Blonde Redhead, Jóhanni Jóhannssyni og Hildi Guðnadóttur. Skúli hefur þá einnig samið tónlist fyrir kvikmyndir og leikhús sem og stýrt plötuupptökum. Hann er einn af stofnendum plötuútgafunnar og listarýmisins Mengis og hefur verið listrænn stjórnandi staðarins frá upphafi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,