12:42
Hvar er Jón?
3. þáttur: Leitin
Hvar er Jón?

Þegar Jón Þröstur Jónsson kom til Dyflinnar í febrúar 2019 stóð til að hann myndi verja fríinu sínu í að spila póker og ferðast með konunni sinni.

Þess í stað hvarf hann sporlaust.

Nú, sex árum síðar, taka RÚV og RTÉ á Írlandi höndum saman við rannsókn málsins í hlaðvarpinu Where is Jón? sem birtist hér í íslenskri aðlögun.

Where is Jón? má finna á hlaðvarpsveitum og í spilara RÚV þar sem einnig má finna útgáfu með íslenskum texta.

Þáttaröðin Where is Jón? er skrifuð og framleidd af Önnu Marsibil Clausen og Liam O’Brien. Tónlistin er samin og flutt af Úlfi Eldjárn ásamt Unni Jónsdóttur á selló. Hljóðvinnslu Hvar er Jón annast Jón Þór Helgason.

Yfirgnæfandi meirihluti einstaklinga sem hverfa finnast innan 72 tíma. En ef manneskja finnst ekki innan þess tímaramma, fara líkurnar á að komast að því hvað varð um hana hverfandi. Þegar fjölskylda Jóns Þrastar kom til Írlands í kjölfar hvarfsins fannst þeim fullljóst að eitthvað mjög slæmt hefði hent Jón. En það dugði ekki til, þau þurftu að sannfæra aðra líka.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 26 mín.
,