Kiljan

Leyft öllum aldurshópum

04. nóv 2026

Auður Ava Ólafsdóttir er gestur í Kilju vikunnar. Hún ræðir um nýja skáldsögu sína sem nefnist Tengdasonur Íslands. Við eigum stefnumót við Hallgrím Helgason í IKEA og spjöllum um bókina hans sem gerist þar – Enginn deyr í IKEA. Við förum norður í Skagafjörð og hittum sagnfræðinginn Guðnýju Hallgrímsdóttur sem hefur ritað bók sem kallast Dauðadæmd og fjallar um dulsmál á seinni hluta 18. aldar. Felix Bergsson segir frá barnabók sinni sem nefnist Leynifélag í lífsháska. Gagnrýnendur þáttarins ræða um Gistiheimilið í Beroun eftir Gyrði Elíasson, Vorblót eftir Katrínu Jakobsdóttur og Morðið á Evelyn Gray eftir Arnald Indriðason.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,