Kiljan

Leyft öllum aldurshópum

11. nóv. 2026

Lilja Pálmadóttir er gestur í Kilju vikunnar. Hún stendur fyrir útgáfu á ritsafni sem inniheldur heildarverk Sveins Pálssonar. Þetta er gríðarlega metnaðarfull og vegleg útgáfa enda tímabært að heiðra minningu Sveins af myndarskap. Sveinn var uppi 1762 til 1840, var sannur og metnaðarfullur vísindamaður, rannsakaði náttúru Íslands, en var að auki læknir í stóru héraði og þurfti verulega að hafa fyrir lífinu. Jón Kalman Stefánsson segir frá nýrri skáldsögu eftir sig sem nefnist Vakir þú? Hinn margverðlaunaði höfundur Rán Flygenring sendir frá sér enn eina sprellfjöruga barnabókina, hún nefnist Bananasafnið og kemur um margt á óvart. Birgir Tjörvi Pétursson hittir okkur á Reynistað í Skagafirði. Hann gefur frá sér fyrstu skáldsögu sína sem nefnist Skuggar af Kili, en í bakgrunni hennar eru örlög Reynistaðabræðra sem hafa orðið Íslendingum mjög hugleikin. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Sauðburð eftir Hermann Stefánsson, Frelsarann eftir Steinar Braga og Babb eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,