Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðiprófessor er gestur í Kilju vikunnar. Hann ræðir um bók sína Vald hinna veiku en hún fjallar um landhelgismálið árin 1971-74 þegar landhelgin var færð út í 50 mílur. Hjónin Gunnar Theodór Eggertsson og Yrsa Þöll Gylfadóttir segja frá bókum sínum sem koma út nú fyrir jólin, Matargatið heitir bók Gunnars en Allt í rugli heitir bók Yrsu. Bragi Ólafsson spjallar um tvær nýútkomnar bækur sínar, Innanríkið: aðfangadagar heitir önnur en hin er ljóðasafn með titilinn Á horni Bayswater Road og Lækjargötu. Birna Anna Björnsdóttir segir frá Hótel Héðinsfirði - það er sakamálasaga sem gerist í myrkri og kulda á Tröllaskaga. Þórarinn Eldjárn flytur fyrir okkur þulur úr bók sinni sem nefnist einfaldlega Tólf þulur. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Enginn deyr í Ikea eftir Hallgrím Helgason, Veislu þrjú eftir Steinunni Sigurðardóttur og Svartakóf eftir Ragnar Jónasson.