Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Halldór Guðmundsson er gestur í Kiljunni á miðvikudagskvöld. Hann segir okkur frá nýútkominni bók eftir sig sem nefnist Líf í bókum. Þetta er íslensk bókmenntasaga frá upphafi til vorra daga, sögð á nokkuð persónulegan og aðgengilegan hátt. Brynja Hjálmsdóttir ræðir nýja bók sína, það er hryllingssaga sem hún kallar Undir fögru skinni. Við skoðum hin undirfurðulegu vélritunarljóð Óskars Árna Óskarssonar sem er að finna í nýju safni sem nefnist Þrjátíu og sjö skáld í mynd. Védís Eva Guðmundsdóttir kveður sér hljóðs á skáldavettvangi með ljóðabókinni Brotnar línur. Svo eru það Vísur Svantes eftir danska skáldið og tónlistarmanninn Benny Andersen - Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hefur þýtt þennan feikivinsæla kvæðabálk og segir frá honum auk þess sem við fáum tóndæmi. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Ljósföður eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttir, Aðskotahluti eftir Einar Lövdahl og Þau sem urðu eftir en höfundur hennar er Eva Björg Ægisdóttir.