Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Við fjöllum við um bók sem nefnist Réttir á Íslandi. Höfundur hennar er Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari sem nýtur aðstoðar föður síns, Gísla B. Björnssonar. Réttirnar eru ótalmargar, þær eru menningarminjar, og þau hafa skoðað bæði frægar réttir og réttir sem voru öllum gleymdar og týndar. Við fræðumst um nýja ævisögu tónskáldsins Jórunnar Viðar sem Árni Heimir Ingólfsson hefur skráð. Einar Lövdahl kemur í þáttinn með glænýja skáldsögu úr samtímanum sem nefnist Aðskotahlutir. Magnús Sigurðsson setur saman alls konar sérkennileg og skemmtileg brot í bókinni Skrílmálið - þetta er í anda nokkurra fyrri bóka hans er hér fjallar hann helst um tungumálið, sjálfa íslenskuna. Gagnrýnendur þáttarins lesa þrjár bækur: Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson og Jakob eftir Satu Rämö.