Fjölgun og fjölbreytni
Íslenskum kvikmyndum fjölgar mikið á öðrum áratug 21. aldar og undir lok hans fjölgar konum í hópi kvikmyndahöfunda. Áhersla á gamanmyndir annars vegar og dramatískar myndir hins vegar…
Á síðari hluta tíunda áratugarins eru Friðrik Þór Friðriksson og Íslenska kvikmyndasamsteypan alltumlykjandi. Á þessum tíma gerir Friðrik tvær myndir, Djöflaeyjuna og Engla alheimsins. Aðrar myndir frá þessum tíma eru til dæmis Ungfrúin góða og húsið, Íslenski draumurinn, 101 Reykjavík og Myrkrahöfðinginn.

Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.